Rekur samfylkingin sjálfan sig ?

Nú virðist vera komið að því að ríkisstjórnin sé endanlega að missa stjórnina í landinu. Óeirðir hafa staðið yfir dögum saman reiði, hiti og ofbeldi af annarri stærðargráðu en við höfum áður séð. En hvað tekur við og með hvaða hætti ? Ætlar fólk að samþykkja að Hin svokallaða samfylking gangi útúr Þinghúsinu að aftan og svo aftur inn að framanverðu ? Eru forkólfar Samfylkingarinnar ekki endanlega búnir að sanna núna að þeir eru gersamlega óhæfir til að stjórna landinu ? Er þetta ekki etv hreyfing sem er betur í stakk búin til að stjórna sveitarfélögum en að vera í landsmálapolitík? Ekkert af því sem Samfylkingin hefur lofað hefur skilað sér, öllum má vera ljóst að gríðarleg sundrung er í flokknum. Ráðherrar flokksins eru og voru algerlega án tengsla við fólkið í landinu. Allir muna eftir yfirlýsingum ss "það er engin kreppa" og " Ég vissi ekkert af því". Ef gengið verður til kosninga aftur er mikilvægt að fólk láti samfylkinguna ekki gabba sig í annað sinn. Gefum Ráðherrum Samfylkingarinnar tækifæri á að leita sér að vinnu við sitt hæfi en langt frá Alþingi íslendinga.


mbl.is „Stjórnarslit fyrir helgi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Þorleifsdóttir

heyr!

Ingibjörg Þorleifsdóttir, 22.1.2009 kl. 10:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bjarni Guðnason

Höfundur

Bjarni Guðnason
Bjarni Guðnason
Hefur verið flæmdur burt af landinu af glæpahsyki
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband